Fjölmenn sendinefnd RT 130 frá Frederiksborg tók höfðinglega á móti mér á Kastrup og fyrr en varði flugum við eftir dönskum þjóðvegum, á nokkrum reffilegum skutbílum, með repjuengin í fagurgulum blóma á báðar hendur. Í mínum bíl voru tveir duglegir teiblarar á öðru ári í RT 130, ungir fjölskyldumenn, sem fræddu mig um danskar RT hefðir, hetju-teiblara með 1000% mætingu, Buffalo hefðir sem ég hafði ekki heyr af áður og fleira skemmtilegt. Svendborg er á Fjóni, um tveggja tíma akstur frá Köben svo föruneytið ákvað að ægja í Nyborg, handan Stórabeltisbrúarinnar. Eins og góðu ævintýri sæmir „villtumst“ við smá þegar leiðsögukerfið sendi okkur eftir þröngum skógarstígum og sveitavegum sem liðuðust um lítil þorp og hlaðvarpa hrörlegra sveitabæja seinasta spölinn okkar til Svendborg. Danmörk hefur alltaf verið í svo mikilli hraðferð hjá mér að þessir útúrdúrar féllu vel í kramið.
Read moreEuro5 í Bournemouth
Það sem kom því á óvart var að á borðunum var búið að koma fyrir pokum með pappírskúlum og pappírshólkum sem gestir áttu að nota til að skjóta í allar áttir. Það leið ekki langur tími þangað til fyrstu kúlurnar flugu um salinn og lét íslenski hópurinn sig ekki vanta í þeim bardaga. Eflaust rann þá upp fyrir þeim sem sáu um skipulagningu á kvöldinu að ekki væri sniðugt að setja íslendinga í svona aðstæður því okkar borð skaut linnulaust um allan salinn og var farið í leiðangur um salinn til að týna upp ný skotfæri sem dreifðust um um salinn.
Read moreAGM Danmörk; ferð frábæra minninga, þynnku og skaðbrenndra skalla
Tveir frá RT-5 og einn frá RT-16 fóru á AGM í pálmastrandbænum Frederikshavn í Danmörku í maí síðastliðnum. Þá má með sanni segja að okkur hafi liðið eins og við værum komnir á suðrænar slóðir, umkringdir pálmatrjám og í miðri hitabylgju uppá 25°C. Þetta var ferð frábærra minninga, þynnku og skaðbrenndra skalla.
Read moreRT-1 fyrstir og fremstir í Helsinki sumarið 2018
Dagana 24. til 27. maí sl. hittust Ásar víðsvegar að úr Evrópu í Helsinki þar sem var haldin samkoma þeirra fyrstu og fremstu. Það voru 8 félagar skráðir frá RT-1 Reykjavík en þar af voru 5 að fara á sitt fyrsta númeramót. Á fundinum voru saman komnir saman um 110 teiblarar frá um 15 löndum utan heimamönnum. Við fórum tveir félagar degi á undan út til að hita okkur upp. Við hittum bæði aðra teiblara sem voru komnir á svæðið á undan en einnig heimamenn.
Read moreFerðasaga RT-10 á Eruromeeting til Thun Sviss
Á lestarstöðinni í Thun tók á móti okkur góðvinur okkar frá Euromeeting í Keflavík, Thomas Zulauf. Þó Thomas hefði ekki hitta alla í hópnum áður þekkti hann alla með nafni. Eða allavega eins og hann hélt að það hljómaði. Thomas sá til þess að láta skutla okkur á hótelið okkar sem við yrðum á fyrstu nóttina. Delta Park hét það hótel en það var með glæsilegra móti og með stórkostlegu útsýni út á Lake Tune. Thomas, Benno Wyss, Omar Lüthi tíumenn komu þangað ásamt eiginkonum og áttu góða stund með okkur fram á kvöld.
Read moreRT-11 í Amsterdam. Sportbíll og James Bond
Það var eldsnemma að morgni föstudagsins 3. júní 2017 sem tveir félagar úr RT-11 í Vestmannaeyjum lögðu af stað frá Hafnarfirði. Ferðinni var heitið til Keflavíkur og þaðan til Amsterdam. Raunar var það svo eldsnemma að bjórinn á „Loksins“ hefur verið betri!
Read more